Línudansnámskeið hjá vottuðum línudansþjálfara. Byrjendanámskeið og lengra komnir.

Námskeið í Línudansi hjá vottuðum KickStart Country línudansþjálfara

8 skipta námskeið
Verð 19.900 kr.

Byrjenda- og framhaldsnámskeið
Sjá námskeið neðst á síðunni.

Athugið einnig sérsniðin námskeið fyrir hópa í boði.

Staðsetning: Bíldshöfða 10, 110 Reykjavík í Dansfélagi Reykjavíkur.

Byrjendanámskeið eru létt og skemmtileg og henta fyrir alla. Línudans kenndur alveg frá grunni að uppskrift KickStart Country ásamt því að spekúlera örlítið í líkamsstöðu og einfaldri danstækni. Snýst fyrst og fremst um að hafa gaman saman.

Þú þarft enga fyrri dansreynslu. Línudans er einstaklingsdans og því enginn ákveðinn dansfélagi. Hópurinn dansar saman.

Ef þú hefur fyrri dansreynslu úr línudansi, samkvæmisdansi eða öðrum dansstílum getur þú skráð þig beint á framhaldsnámskeið.

Enn ekki alveg viss um að þetta sé fyrir þig? Kíktu á 5 góðar ástæður fyrir því að stunda línudans Smelltu hér.

Veldu námskeið sem hentar hér að neðan og skráðu þig á næsta námskeið. Þú sérð ekki eftir því.

Línudans byrjendanámskeið

KickStart Country línudans

Byrjendur

Komdu með í gleðina. Næsta byrjendanámskeið verður í haust.

8. skipta námskeið.

Fá tilkynningu um námskeið

KickStart Country línudans

Framhald 1

Þetta er námskeið fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði eða eru vanir að læra spor og rútínur úr öðrum dansstílum.

Hefst 19. apríl 7. skipti, sunnudagskvöld kl. 20.00. Kennt á Bíldshöfða 10, 110 Reykjavík

Verð 17.500 kr.

Skrá mig á námskeið

KickStart Country línudans

Framhaldshópur

7. skipti á fimmtudögum kl. 18.00
12. mars - 7. maí.

Ekki kennsla á frídögunum: 2. og 24. apríl.

Þrískiptur danstími 1,5 klst.

  • Fyrstu 30 mín. Dansar sem hafa verið kenndir áður í Framhaldi 1. Endurtekning skapar meistarann 💪
  • Næsta hálftíma verða rifjaðir upp auðveldir dansar og kenndir nýir sem henta öllum 👢
  • Síðustu 30 mínúturnar eru svo kenndir erfiðari dansar sem eru miðaðir að þeim sem eru lengst komnir. Þeir sem eru búnir að dansa styttra geta spreytt sig eða kallað þetta gott og farið fyrr 😊

Verð 17.500 kr.

Skrá mig á námskeið

Sérsniðin námskeið

Smalakántrí

Smalaðu saman vinum í línudans, sérsniðið námskeið bara fyrir ykkur. Þessi námskeið eru kennd í minni sal sem heldur vel utan um hópinn og hópurinn getur ákveðið erfiðleikastigið og áherslur ef hann vill.

Kennt á Bíldshöfða 10, Mathöllin á Höfða er hinumegin við götuna og tilvalið að fara stundum og borða saman fyrir eða eftir tíma.

Fjöldi 8-10 manns. Kennt í 6. skipti.
Verð 24.900 kr. á mann.

Senda fyrirspurn