Skilmálar og persónuverndarstefna
Skilmálar
Námskeið geta fallið niður ef ekki næst næg þátttaka og eru námskeiðsgjöld þá endurgreidd innan tveggja daga.
Þátttakendur á námskeiðum og viðburðum bera einir ábyrgð á heilsu sinni og að gæta þess að ofgera sér ekki eða slasa. Engin ábyrgð er tekin á persónulegum munum þátttakenda á meðan á námskeiðum og viðburðum stendur.
Tengiliðaupplýsingum um þátttakendur námskeiða er safnað í þeim tilgangi að senda þeim tölvupósta með upplýsingagjöf vegna yfirstandandi námskeiða.
Notkunarskilmálar vefs
Samþykki þitt á eftirfarandi notkunarskilmálum vefsins (vefsíðna félagsins) er skilyrði fyrir notkun þinni á vefnum.
Allt sem birt er á þessum vef er varið höfundarrétti svo sem textar, myndbönd og myndir. Niðurhal til einkanota er ekki heimil. Öll notkun efnis af vefnum, með eða án beitingu forrita, er bönnuð nema með skriflegu samþykki síðueiganda.
Efni vefsins er birt með fyrirvara um mögulegar villur eða rangfærslur. Birtingin er án þess að gengist sé í ábyrgð eða undir skuldbindingar svo sem þær kunna að skapast vegna efnisins.
Notkunarskilmálar geta breyst án fyrirvara. Með notkun á vefsíðunni samþykkir þú þessa notkunarskilmála.
Persónuvernd
Hér koma nokkrar útskýringar á þeim persónuupplýsingum sem við söfnum og af hverju við söfnum og þeim. Við eyðum gögnum um þig hvenær sem þú óskar. Hægt er að hafa samband á linudansskolinn@linudansskolinn.is
Tengiliðaupplýsingar
Til þess að geta verið í samskiptum við nemendur, þá þurfum við að halda utan um nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Þessum upplýsingum deilum við aldrei með þriðja aðila. Í öllum tölvupóstum sem við sendum frá okkur er tengill sem hægt er að ýta á til að afskrá sig af póstlista kjósir þú að gera það.
Greiðsluupplýsingar
Engar kortaupplýsingar eru vistaðar hjá okkur.
Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að greina umferðina á okkar vefsvæði og til að beina auglýsingum til okkar markhópa. Við notum einnig Google Analytics til að mæla umferð um vefinn, en þær upplýsingar eru ekki persónugreinanlegar.
Vafrakökur (e. Cookies) eru litlar skrár sem hlaðast þegar notendur fara inn á ákveðin vefsæði og vistast á tækið sem notast er við. Þessar vafrakökur hjálpa vefsíðunni að greina á milli notenda á vefnum og hvernig þeir vilja nota vefinn.
Aðrar upplýsingar
Aðrar upplýsingar sem við vinnum með eru alls kyns tölfræðilegar upplýsingar, sem eru ópersónugreinanlegar upplýsingar og ekki hægt að rekja til stakra viðskiptavina. Þetta eru t.d. upplýsingar um heildarfjölda pantana, heimsóknir á vef, notkun afsláttarkóða o.s.frv.
Ábyrgðaraðili vefins er Ninja Maggadóttir. kt. 170575-3269. Sértu með spurningar eða ábendingar skaltu senda tölvupóst á ninja@linudanskolinn.com