Passar þú inn í Kántrí og dansferðina í haust og á Nashville Dance Fest?

Passar þú inn í Kántrí og dansferðina í haust og á Nashville Dance Fest?

Svarið er já og já. Mikið af auglýsingaefninu frá Nashville dance fest sýnir svakalega vana dansara af því að það er fólkið sem er alla jafnan hrifnast af því að vera í mynd en ekki láta það gefa ykkur ranga mynd 🤠

Á hátíðinni er fólk af öllum stærðum og gerðum, á öllum aldri, kynþætti og kynhneigð. Þar er að finna fólk sem hefur aldrei dansað áður og yfir í heimsmeistara. Það er kennsla á daginn á fimm mismunandi erfiðleikastigum allt frá Beguinners Bungalow, byrjendasvæðinu þar sem er búist við fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í línudansi eða Country Swing og kenndir einfaldir dansar á rólegum hraða, yfir í að það er hægt að velja tíma í erfiðum dönsum hjá heimsmeisturum og allt þar á milli. Hátíðarhaldararnir vanda sig við að taka vel á móti stutt komnum byrjendum og fólki sem hefur ekki dansað áður, þannig að öllum líði velkomnir.

Ég mun einnig fara með í Beguinners Bungalow með þeim sem vilja byrja þar og dansa með þeim og styðja við hópinn og leiðbeina öðrum um hvar er best að byrja ef fólki langar að demba sér beint í að reyna við erfiðari dansa. 

Síðan eru flottir útitónleikar og social dans á kvöldin. Keppnir á daginn í línudansi, Country Swing og Honky Tonk sem er gaman að tylla sér og horfa á ef manni langar að taka sér hvíld frá danstímum. Inni á svæðinu eru líka matarvagnar, drykkjastöðvar, barir og sölutjöld. Það hafa t.d. verið nuddarar og tattoo artistar með aðstöðu þarna svo það er ýmislegt um að vera. Hótelið er rétt hjá, innan við 5 mínútna labb eftir einni götu þangað ef fólki langar að taka sér pásu og skipta um föt t.d.

Ef þig langar að koma með en hefur áhyggjur af því að vera utangátta þarna að þá er það ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Við erum bara að fara að skemmta okkur saman, hver á sínum forsendum og það passa allir inn. Það er líka öllum frjálst að hanga með mér og manninum mínum í ferðinni eins mikið og þið nennið 🤠

Komdu með - Þetta verður ævintýri

Ferðalýsing og bókanir hér:
https://www.icelandair.com/is-is/pakkaferdir/kantriferd_til_nashville/

 

Til baka